Samtök áhugafólks um skólaþróun


Samtökin hafa opnað nýjan vef, sjá á þessari slóð: www.skolathroun.is

áRÍÐANDI: þEIR FÉLAGSMENN SEM EKKI HAFA FENGIÐ FRÉTTAkorn SAMTAKANNA (maí) ERU BEÐNIR UM AÐ SNÚA SÉR TIL RITARA (ingvar(hjá)khi.is). Einnig má nálgast fréttakornið hér.
 

Um samtökin
 
Undirbúningshópur
 
Stjórn
 
Lög samtakanna

Félagaskrá

Upplýsingar um styrki
til þróunarverkefna

Áhugaverðir
skólaþróunarvefir

 

 

 
 

 

 

Fréttir

VIÐ MIÐLUM HUGMYNDUM: RÁÐSTEFNA UM NÁMSMATSAÐFERÐIR Á VEGUM SAMTAKANNA 14. ÁGÚST, FRÁ KL. 13.0017.00

Á ráðstefnunni munu aðalfyrirlesarar bregða upp mynd af stöðu námsmats á leik-, grunn- og framhaldsskólastigi. Í framhaldi af því munu kennarar af öllum skólastigum kynna áhugaverðar hugmyndir um fjölbreyttar námsmatsaðferðir. Áhersla verður lögð á stuttar og markvissar kynningar á fjölbreyttum aðferðum í anda einstaklingsmiðaðs námsmats.
Ráðstefnan verður haldin í Fjölbrautarskólanum í Garðabæ.


ÁRSÞING SFS

Fyrirhugað er að halda ársþing Samtaka fámennra skóla 15. september 2006

Þingið verður að þessu sinni að Bakkaflöt í Steinsstaðahverfi sem er í Lýtingsstaðahreppi hinum forna í Skagafirði. Meginþema verður umfjöllun um tengsl skóla og umhverfis, hvernig nýta skólar umhverfi sitt og sérstöðu og hvernig geta þeir nýtt hana?


Kynning á Þróunarstarfi í borgarholtsskóla

Miðvikudaginn 22. mars var kynning á þróunarstarfi í Borgarholtsskóla í Reykjavík. Skólamestari og kennslustjórar skólans kynntu þróunarstarfið í skólanum sem er mjög fjölþætt.

Heimasíða Borgarholtsskóla er: http://www.bhs.is


ráðstefna um stærðfræði fyrir byrjendur, 1-3ja ára

 

Þann 23.september 2006 gengst Skólaþróunarsvið Háskólans á Akureyrir fyrir ráðsefnu um nám og starf yngstu barnanna í leikskólanum með sérstaka áherslu á stærðfræði.   Aðalfyrirlesarar verða tveir sænskir leikskólakennarar, Mikaela Sundberg og Susanne Hådén. Fyrirlestur þeirra heitir: „Stærðfræði og hringir -  í hverju felst stærðfræði fyrir 2ja og 3ja ára börn?

 

Á ráðstefnunni verða málstofur þar sem fræðimönnum, leikskólakennurum og ráðgjöfum gerst kostur á að kynna störf sín og rannsóknir.  Helst er leitað eftir:

  • Kynningu á þróunarstarfi með yngstu börnin

  • Kynningu á rannsóknum á námsleiðum ungra barna

  • Stærðfræði með ungum börnum

Frestur til að senda inn lýsingu á erindi er til 17. mars. Svör um samþykki frá ráðstefnunefnd mun berast fyrir 31.mars 2006.

 

Allar nánari upplýsingar gefur Sigríður Síta Pétursdóttir, netfang sita@unak.is sími 460-8570
 


Frumvarp um breytingar á grunnskólalögum

Menntamálaráðuneytið óskaðI eftir því að samtökin veittu umsögn um frumvarp til laga um breytingu á lögum nr. 66/1995, um grunnskóla, sjá á þessari slóð: http://www.althingi.is/altext/132/s/0671.html

Samtökin gengust fyrir umræðufundi um drögin mánudaginn 27. febrúar. Á fundinum var gengið frá svohljóðandi ályktun: 

Fundur í Samtökum áhugafólk um skólaþróun hefur fjallað um frumvarp til laga um breytingar á grunnskólalögum

 

Samtökin telja að flestar þær breytingar sem boðaðar eru séu til bóta. Nefna má bætt ákvæði um skólanámskrárgerð, nemendaráð og aðkomu foreldra. Þá er fengur að nýjum ákvæðum í 8. og 32. grein um aukin sveigjanleika gagnvart námi utan skóla. Samtökin leyfa sér að benda á eftirfarandi atriði:

  • Samtökin telja ástæðulaust að kveða á um fjölda og fyrirkomulag samræmdra prófa í lögum til þess að lögin bindi ekki eðlilega þróun námsmatsaðferða. Því er æskilegra að hafa ákvæði um að menntamálaráðuneytið setji reglugerð um námsmat og fyrirkomulag samræmdra prófa.
  • Starfsumhverfi í skólum er mjög að breytast og starfsfólki, öðrum en kennurum, hefur verið að fjölga mjög á undanförnum árum. Nauðsynlegt er að lögin tryggi aðkomu annarra starfsmanna að stjórnum skólans.
  • Vegna breytts starfsumhverfis verður stjórnun skóla stöðugt umfangsmeiri og flóknari. Þó það kunni að vera jákvætt að binda ekki lengur ákvæði um stöðu aðstoðarskólastjóra í lögum þarf að tryggja að sveitarfélög leggi nægjanlegt fjármagn til stjórnunar, t.d. með hliðsjón af starfsmanna- og nemendafjölda.
  • Samtökin sjá ekki ástæðu til að fella brott ákvæði 29. greinar, enda er hún mikilvæg útfærsla á 2. grein. Þarna eru tilgreind mjög mikilvæg almenn markmið sem víðtækt samkomulag er um að hafa að leiðarljósi í grunnskólastarfi og við gerð aðalnámskrár. Færa má rök fyrir því að mörg þeirra endurspeglist ekki nægilega vel í aðalnámskrá og skólaámskrám og því full ástæða til að halda þeim til haga.
  • Í ljósi þess að sett eru ný ákvæði um að skólanefnd staðfesti skólanámskrá (31. gr.) þarf að vera skýrt hvernig fara skuli með ef ágreiningur verður um staðfestingu hennar. 
  • Ekki er nægilega skýrt í lögunum hver staða sjálfstætt rekinna grunnskóla er gagnvart sveitarfélögunum. Samkvæmt 9. grein heyra þeir beint undir ráðuneytið. Samkvæmt 56. grein segir að um þá gildi sömu lög og reglur og um grunnskóla "eftir því sem við á". Þá er t.d. ekki ljóst hvort sjálfstætt reknum skólum beri eins og öðrum grunnskólum að leggja skólanámskrá sína fyrir skólanefnd til staðfestingar.
Fyrir þá sem áhuga hafa á að kynna sér breytingarnar sem frumvarpið gerir ráð fyrir að verði á lögunum má benda á að á vef Skólaskrfstofu Suðurlands má nálgast skjal þar sem búið er að merkja allar breytingar inn í gömlu lögin með bláu.
 
Slóðin á vefinn er http://www.sudurland.is/skolasud/. Velja þarf stiklu til hægri sem heitir Breyting á lögum um grunnskóla nr. 66/1995
 

CAROl ANN TOMLINSON

Hin kunna bandaríska fræðikona, Carol Ann Tomlinson, var hér á landi í marsbyrjun og flutti nokkra áhugaverða fyrirlestra fyrir skólafólk um einstaklingsmiðað nám, sem hún kennir við differentiation. Þeim sem áhuga hafa á að kynna sér skrif hennar skal bent á vefsíðu á vefnum Skref í átt til einstaklingsmiðaðs náms.


Hvatningarverðlaun Menntaráðs reykjavíkur voru afhent 19. febrúar, sjá Nánar hér


FRÉTTABRÉF SAMTAKANNA KOMIÐ ÚT

Félagsmenn eiga nú að hafa fengið fyrsta fréttabréf Samtakanna sent til sín. Ef ekki er áríðandi að hafa samband við ritara (ingvar(hjá)khi.is). Eins er hægt að sækja fréttabréfið með því að smella hér. Félagsmenn eru hvattir til að prenta fréttabréfið út og dreifa því sem víðast.

Í fréttabréfinu eru m.a. auglýstar skólaheimsóknir í skóla á öllum skólastigum þar sem unnið hefur verið að ýmsum þróunarverkefnum. Fyrsta heimsóknin verður í Salaskóla í Kópavogi, þriðjudaginn 21. febrúar kl. 8.00-9.00. Þar mun Hafsteinn Karlsson skólastjóri taka á móti gestum og kynna starf skólans, en í Salaskóla hefur m.a. verið byggt á samkennslu aldurshópa. Boðið verður upp á morgunverð!

Næsta heimsókn verður í Leikskólann Reynisholt fimmtudaginn 23. febrúar kl. 13.30-14.30.


SKÓLASTARF OG SKÓLAUMBÆTUR: 10 SKREF TIL SÓKNAR

Athygli félagsmanna er vakin á því að í nýgerðum samkomulagi Kennarasambands Íslands og menntamálaráðherra eru nokkur stefnumið sem tengjast skólaþróunarverkefnum. M.a. er stefnt að því að vinna að eflingu endurmenntunar kennara á öllum skólastigum í tengslum við endurskoðun aðalnámskrár. Þá er stefnt að eflingu verk- og starfsnáms í grunn- og framhaldsskólum, eflingu almennrar námsbrautar í framhaldsskólum og að átaki í námsefnisgerð.


MÁLÞING UM NÁTTÚRUFRÆÐIMENNTUN

Málþing um náttúrufræðimenntun var haldið föstudaginn, 31. mars og laugardaginn, 1. apríl. Þingið sóttu rúmlega 200 manns.  

Þingið var helgað minningu Ólafs Guðmundssonar, kennara, sem lést hinn 9. september síðastliðinn. Ólafur var mikill áhugamaður um náttúrufræðimenntun og þá sérstaklega þátt tilrauna í kennslu efna- og eðlisfræði en þessar greinar kenndi hann m.a. við Háteigsskóla og KHÍ. Síðust ár sín hafði hann umsjón með Rafheimum, fræðslusetri Orkuveitu Reykjavíkur í Elliðaárdal.

Megintilgangur málþingsins var að varpa ljósi á náttúrufræðimenntun á Íslandi með það fyrir augum að efla náttúrufræðikennslu í skólum. 
 
 

Sjá nánar á þessari slóð:
http://natturufraedi.khi.is/natting


AÐ SÁ LÍFELFDU FRÆI: RÁÐSTEFNA UM EINSTAKLINGSMIÐAÐ NÁM Á AKUREYRI 22. APRÍL 2006

Á ráðstefnunni var fjallað m kenningar og hugmyndfræði einstaklingsmiðaðs náms og hvernig skólinn er í stakk búinn til að takast á við það hlutverk sitt að mæta mismunandi þörfum hvers og eins.

Aðalfyrirlesarar á ráðstefnunni voru Mel Ainscow, Ingvar Sigurgeirsson, Guðmundur Engilbertsson og Sif Vígþórsdóttir

Sjá nánar á vef ráðstefnunnar:

http://vefir.unak.is/skolathroun/radstefnur/22april_2006/


STOFNFÉLAGAR ORÐNIR 325

Þegar þetta er ritað (23 mars) hafa 325 gerst stofnfélagar í Samtökum áhugafólks um skólaþróun. Félagaskrá er að finna hér á vefnum. Vinsamlega gangið úr skugga um að rétt sé farið með nöfn ykkar og vinnustað. Hafið samband við ritara ef ekki er rétt farið með. Þeim sem áhuga hafa á að ganga til liðs við samtökin er bent á að snúa sér til ritara samtakanna.


 

Þing Samtakanna 2006 verður haldið
í Ingunnarskóla
í Reykjavík 17.
18. nóvember
Meginþema þingsins verður lýðræði í skólastarfi - áhrif
nemenda, foreldra, starfsfólks, annarra



Stofnþing samtakanna
var haldið á Selfossi
18. nóvember sl.

Efni
frá stofnþinginu

Ályktanir stofnþings

Þingfulltrúar



Fréttatilkynning til fjölmiðla um stofnþing samtakanna
 


Námsgagnastofnun
NÁMSGAGNASTOFNUN



Símenntunarstofnun
Kennaraháskóla Íslands


Styrktar- og stuðningsaðilar samtakanna
 

© 2005 Samtök áhugafólks um skólaþróun | Hafðu samband
Síðast breytt 01.06.2006

Hit Counter
Teljari stilltur 27. 2. 06